Notkun á rafrænum skilríkjum á Auðkenniskorti
Þegar rafræn skilríki á Auðkenniskorti eru notuð þarf að byrja á því að setja upp Smart ID hugbúnað og sækja Minidriver.
Athugaðu!
Eins og stendur styður Mac-umhverfið ekki hugbúnað Auðkenniskorta.
Svona er uppsetningaferlið:
Sæktu Nexus Smart ID forritið með því að smella á skrána hér fyrir neðan.
Þá vistast forritið í Downloads möppunni (nema annað sé valið).
Tvísmelltu á forritið og keyrðu það upp. Notaðu sjálfgefnar stillingar. Þú gætir þurft að endurræsa tölvuna.
Næst þarf að sækja SafeNet-minidriver með því að smella á skrána hér fyrir neðan og hlaða niður á tölvuna.
Smelltu á forritið.
Veldu „Next“ og „I accept the terms in the license agreement“ og smelltu svo á „Next“.
Að lokum smellir þú svo á „Install“ og „Yes“ til þess að klára uppsetninguna.
Smelltu hér ef þú ert með Auðkenniskort sem var gefið út í september 2022 eða fyrr.
Kortalesari
Rafræn skilríki á Auðkenniskorti eru sett í kortalesara sem tengdur er við tölvu með USB tengi. Kortalesara er hægt að fá í flestum útibúum banka og sparisjóða og hjá Auðkenni í Katrínartúni 4, á fyrstu hæð.
