Rafræn skilríki fyrir ólögráða
Ólögráða, einstaklingar undir 18 ára aldri, geta fengið rafræn skilríki ef einn forsjáraðili undirritar umsókn.

Þjár leiðir til undirritunar eru í boði:
A) Sjálfskráning í Auðkennisappi er aðgengileg fyrir 13-17 ára með samþykki og undirritun forsjáraðila.
B) Forsjáraðili undirritar rafrænt áður en ólögráða einstaklingur mætir á skráningarstöð.
C) Forsjáraðili og ólögráða einstaklingur mæta saman á skráningarstöð og undirrita umsókn.
Athugið! Báðir aðilar þurfa að framvísa leyfðum persónuskilríkjum á skráningarstöð.
Svona er ferlið þegar leið A er valin:
Ólögráða einstaklingur á aldrinum 13-18 ára sækir Auðkennisappið og velur skráningu með lífkennum
Smellir á hnappinn Ég er ólögráða.
Fer í gegnum ferli sjálfskráningu með lífkennum og vegabréfi, og velur PIN-númer.
Sendir hlekk á forrsjáraðila um undirritun.
Þá hefur forsjáraðili 60 mínútur til að undirrita umsóknina rafrænt
Þegar undirritun er lokið getur ólögráða einstaklingurinn klárað útgáfu skilríkja í sínu snjalltæki
Svona er ferlið þegar leið B er valin:
Forsjáraðili fer inn á Mínar síður Auðkennis og skráir sig inn með rafrænum skilríkjum.
Smellir á hnappinn Sækja um skilríki fyrir ólögráða.
Skráir kennitölu ólögráða einstaklings inn og smellir á hnappinn Skrá upplýsingar.
Umsóknin er nú útbúin og forsjáraðili les yfir skjalið.
Smellir á hnappinn Undirrita rafrænt. Hægt er að hala skjalinu niður með því að smella á táknið á valstikunni fyrir ofan skjalið.
Nú þarf forsjáraðili að auðkenna sig með rafrænum skilríkjum til að ganga úr skugga um að sama kennitala sé skráð á umsóknina. Athugið að skjalið er nú falið og læst þar til kemur að undirritun.
Ef auðkenning er samþykkt er skjalið birt á ný og umsækjanda boðið að undirrita.
Þegar undirritun er lokið birtast skilaboð um að nú hafi ólögráða einstaklingurinn 30 daga til að mæta á næstu skráningarstöð til að fá rafræn skilríki.
Svona er ferlið þegar leið C er valin:
Forsjáraðili og ólögráða velja þá skráningarstöð sem hentar þeim að mæta á.
Báðir aðilar framvísa leyfðum persónuskilríkjum.
Forsjáraðili undirritar samning.
Skráningarfulltrúi gefur út rafræn skilríki fyrir ólögráða.