Um rafræn skilríki á SIM-korti

Þessi tegund rafrænna skilríkja er vistuð á SIM-kortið í farsímanum þínum. Þau eru óháð stýrikerfum og virka á flestum tegundum símtækja.

Til þess að fá útgefin rafræn skilríki á SIM-kort þarftu:

  • Að hafa afnot að farsíma sem notar SIM-kort.

  • Vera með íslenskt símanúmer.

Ef þú uppfylllir ekki þessi skilyrði þá gætir þú fengið rafræn skilríki í Auðkennisappið.

Gott að vita:

  • Ef þú skiptir um símafyrirtæki þarftu að fá útgefin ný skilríki.

  • Ef símanúmerinu þínu er lokað þarftu að fá útgefin ný skilríki.

Fylgstu með á mitt.audkenni.is

Skráðu þig inn á mitt.audkenni.is með rafrænum skilríkjum. Þar getur þú staðfest eða breytt tengingarupplýsingunum þínum, séð yfirlit yfir rafrænu skilríkin þín og notkunina.

Vertu með öryggisatriðin á hreinu

  • Aldrei deila PIN-númerinu þínu með öðrum.

  • Passaðu upp á farsímann þinn, hafðu samband við okkur ef þú týnir honum.

  • Þú átt alltaf að eiga upphafið að öllum innskráningum.

  • Aldrei samþykkja auðkenningarbeiðni sem þú átt ekki upphafið að.

  • Lestu um rafrænt öryggi.

Fannstu ekki það sem þú varst að leita að?

Við erum alltaf tilbúin að aðstoða. Sláðu á þráðinn eða sendu okkur línu og við bregðumst við um hæl.

Afgreiðslutími

Virka daga 10-16
Þjónustuverið er opið virka daga 8-18 og laugardaga 10-18

KT. 521000-2790 — VSK nr. 69345