Notkun rafrænna skilríkja á SIM-korti
Svona skráir þú þig inn með rafrænum skilríkjum á SIM-korti
Þú ferð inn á vefsvæði þjónustuveitanda.
Þú slærð símanúmerið þitt inn í innskráningargluggann.
Staðfestingarbeiðni birtist á símanum þínum.
Berðu saman nafn eða númer og staðfestu með því að slá inn PIN-númerið þitt.
Núna ætti þitt svæði hjá þjónustuveitanda að opnast.
Mundu svo að skrá þig út af vefsvæðinu þegar þú hefur lokið erindinu.