Um starfsskilríki
Starfsskilríki eru fullgild rafræn skilríki sem eru hugsuð fyrir starfsfólk fyrirtækja til að framkvæma rafrænar aðgerðir fyrir hönd lögaðila
Það þýðir að þau fylgja ákveðnum ströngum öryggiskröfum í framleiðslu- og afhendingarferlum.
Þegar rafræn skjöl hafa verið undirrituð með fullgildum rafrænum skilríkjum standa þau lagalega jafnt að vígi og skjöl sem eru undirrituð með eigin hendi.
Þau henta t.d. til notkunar með bókhaldskerfum, í samskiptum við Skattinn, Tollstjóra, til innskráningar á ýmis vefsvæði og til undirritunar rafrænna skjala fyrir hönd fyrirtækis.
Starfsskilríkin eru gefin út á einstaklinginn með tengingu við fyrirtækið. Á starfsskilríkin er skráð kennitala starfsmannsins, nafn hans eins og það er skráð hjá Þjóðskrá Íslands, kennitala fyrirtækisins og heiti þess.
Starfsmaðurinn sem fær útgefin starfsskilríkin er sá eini sem má nota þau því einnig er hægt að nota þau til persónlegra aðgerða t.d. að skrá sig inn á netbankann sinn.
Gildistími og verð
Þegar þú sækir um starfsskilríki velur þú gildistímann sem getur verið frá einu til fjögurra ára. Kostnaður fer eftir gildistíma, smelltu hér til að skoða gjaldskránna.