Um Auðkennisappið
Þegar þú ert með rafræn skilríki í Auðkennisappinu þá þarft þú ekki lengur að treysta á símasamband til að auðkenna þig og undirrita á vefnum. Nettenging er það eina sem þú þarft!
Sæktu Auðkennisappið
Það er aðgengilegt í App Store og Google Play. Þegar appið er komið í símann þinn þá er hægt að útbúa rafræn skilríki í það, bæði með sjálfsafgreiðslu eða á næstu skráningarstöð
Svona virkar tæknin í sjálfsafgreiðslunni
Þegar þú virkjar rafræn skilríki í Auðkennisappinu með sjálfsafgreiðslu þá er notast við andlitsgreiningu. Myndavélin í símanum þínum skannar andlitið þitt og þar með lífkenni þín sem eru svo borin saman við vegabréfið þitt.