Notkun á rafrænum skilríkjum á Auðkenniskorti

Þegar rafræn skilríki á Auðkenniskorti eru notuð þarf að byrja á því að setja upp Smart ID hugbúnað og sækja Minidriver.


Athugaðu!
Auðkenniskortin henta því miður ekki til notkunar með tölvum frá Apple þar sem hugbúnaðurinn styður ekki Mac-umhverfið.

Áður en þú byrjar að nota Auðkenniskortið

  1. Það fyrsta sem þú þarft að gera er að sækja Smart ID hugbúnaðinn og hlaða honum niður á tölvuna þína.

  2. Svo þarftu að opna Microsoft Store í tölvunni þinni og skrifa eftirfarandi á leitarstikuna: Nexus Smart ID.

  3. Smelltu svo á „Get“ og svo „Install“.

  4. Tvímelltu á forritið þar sem þú vistaðir það og keyrðu það upp. Notaðu sjálfgefnar stillingar.

  5. Þú gætir þurft að endurræsa tölvuna.

  6. Síðan þarftu að sækja SafeNet-Minidriver og hlaða niður á tölvuna þína.

  7. Smelltu á forritið.

  8. Veldu „Next“ og „I accept the terms in the licence agreement“ og smelltu svo á „Next“.

  9. Að lokum smellir þú svo á „Install“ og „Yes“ til þess að klára uppsetninguna.

Fannstu ekki það sem þú varst að leita að?

Við erum alltaf tilbúin að aðstoða. Sláðu á þráðinn eða sendu okkur línu og við bregðumst við um hæl.

Afgreiðslutími

Virka daga 10-16
Þjónustuverið er opið virka daga 8-18 og laugardaga 10-18

KT. 521000-2790 — VSK nr. 69345