Umsókn um innskrán­ing­ar­þjón­ustu

Í umsókninni þarf að koma fram töluvert magn upplýsinga til þess að innleiðingarferlið gangi vel fyrir sig.

Umsóknin er send til okkar með tölvupósti á netfangið audkenni@audkenni.is

Eftirfarandi upplýsingar þurfa að koma fram í tölvupóstinum:

  1. Kennitala lögaðila.

  2. Aðgangsnafn lögaðila. Það er nafnið sem þið viljið hafa sýnilegt fyrir notendur.

  3. Nafn, kennitala og netfang prókúruhafa.

  4. Nafn og netfang tæknilegs tengiliðar.

  5. Netfang fyrir tæknileg samskipti. Vinsamlega notið hópnetfang.

  6. Upplýsingar um hvort þið viljið bæði auðkenningar- og undirskriftarþjónustu eða annað hvort.

  7. Upplýsingar um hvort þið viljið nota tilbúinn innskráningarglugga eða hanna ykkar eigin.

  8. Upplýsingar um móttöku reikninga, velja á milli skeytamiðlunar eða tölvupósts.

  9. Netfang fyrir fjárhagsleg samskipti. Vinsamlega notið hópnetfang.

Fannstu ekki það sem þú varst að leita að?

Við erum alltaf tilbúin að aðstoða. Sláðu á þráðinn eða sendu okkur línu og við bregðumst við um hæl.

Afgreiðslutími

Virka daga 10-16
Þjónustuverið er opið virka daga 8-18 og laugardaga 10-18

KT. 521000-2790 — VSK nr. 69345