Um Auðkenningarþjónustu
Léttu álagið af viðskiptavinum þínum með því að bjóða þeim upp á örugga auðkenningu með rafrænum skilríkjum.
Með þjónustu Auðkennis geta fyrirtæki boðið viðskiptavinum sínum örugga innskráningu á þjónustuvefi, netverslanir og aðrar stafrænar lausnir án þess að notendur þurfi að muna eða geyma lykilorð.
Þetta eykur ekki aðeins öryggi heldur einnig þægindi, þar sem rafræn skilríki bjóða upp á örugga auðkenningu sem verndar viðkvæmar upplýsingar gegn svikum og gagnalekum.
Innleiðingarferlið
Innleiðingarferlið hefst með því að þú sendir okkur umsókn um innskráningarþjónustu.
Tæknilegur tengiliður þinn þarf svo að kynna sér tæknilegar leiðbeiningar um innleiðingu og velja tengileiðina sem þú vilt nota.
Þá fáið þið aðgang að þróunarumhverfinu til þess að kanna virkni.
Þegar þið eruð búin að staðfesta virknina í þróunarumhverfinu þá er gerður samningur okkar á milli.
Þegar báðir aðilar hafa undirritað samninginn fáið þið aðgang að raunumhverfinu og getið boðið notendum ykkar upp á rafræna innskráningu á sitt svæði á vefnum ykkar.
Athugið! Frá undirritun samnings tekur að jafnaði 5 virka daga þar til innskráningarþjónustan er komin í virkni.
Kostnaður þjónustunnar
Innheimt er fast upphafsgjald fyrir skráningu og tengingu við skilríkjakerfið. Fast mánaðargjald er að skilríkjakerfinu, auk þess er greitt fyrir notkun. Smelltu hér til að skoða gjaldskrána.